Fékk eftirfarandi sent frá vinkonu minni, sem er aðeins eldri en ég. Á ekkert smá vel um mig....og þar sem ég er að ganga í gegnum 25 ára krísuna hjálpar þetta ekki til, þar sem þetta virðist eiga við um "eldri konur" allavega samkvæmt greiningunni;) Allavega here it goes
Er þetta farið að hrjá ykkur ?? (Ég vek athygi á því að þetta er skrifað
af konu).
Ég hef á seinni árum verið plöguð af alvarlegum sjúkdómi sem nýlega hefur
fundist greining á, en engin lækning við, enn sem komið er.
Eftirfarandi er lýsing á dæmigerðum degi þegar einkennin blossa upp : Ég
ákvað einn daginn að þvo bílinn og hélt áleiðis að bílskúrnum, en tók þá
eftir að bréf höfðu borist inn um lúguna. Ég tók bréfin og ákvað að fara
gegnum póstinn áður en ég færi að þvo bílinn. Sorteraði póstinn og ákvað
að henda ruslpóstinum en tók þá eftir að ruslafatan var orðin full og lagði
því reikningana sem höfðu borist, frá mér á eldhúsborðið og ætlaði út með
ruslið, en ákvað þá að fara og borga þessa reikninga, fyrst ég yrði við
bílinn hvort eð er. Fór inn í herbergi til þess að ná í veskið og
bíllyklana en sá þá ný e-mail í tölvunni og ákvað að svara þeim strax svo
ég gleymdi því ekki. Ákvað að ná mér í kaffibolla fyrst. Á leið inn í
eldhús tók ég eftir því að blómið í borðstofunni var orðið heldur þurrt.
Hellti nýlöguðu kaffi í bolla og ákvað að vökva blómið áður en lengra væri
haldið. Náði í blómakönnuna og ætlaði að fylla hana með vatni þegar ég tók
eftir því að fjarstýringin af sjónvarpinu lá á eldhúsborðinu. Ákvað að fara
með hana á sinn stað í sjónvarpsherberginu fyrst, svo ég fyndi hana
örugglega um kvöldið þegar ég settist fyrir framan sjónvarpið að horfa á
uppáhaldsþáttinn "Sex in the City". Á leið í sjónvarpsholið rakst ég á
handklæði sem ég ætlaði að setja í þvottavélina sem beið full af þvotti.
Fór þangað og setti í vélina en fann þá gleraugun sem ég hafði verið að
leita að fyrr um morguninn. Lagði fjarstýringuna frá mér í þvottahúsinu og
fór með gleraugun inn í svefnherbergi þar sem ég ætlaði örugglega að finna
þau þegar ég færi í rúmið að lesa uppáhaldsbókina mína......ef ég finn
hana. Stoppaði í svefnherberginu þar sem dagurinn hófst og mundi ekki
lengur hvað ég ætlaði upphaflega að fara að gera !!!
Í lok dags hafði ég því hvorki þvegið bílinn né borgað reikningana, ekki
vökvað blómin eða þvegið þvottinn, ekki farið út með ruslið, heldur ekki
svarað e-mailunum og var auk þess búinn að týna fjarstýringunni,
bíllyklunum og veskinu og kaffið beið kalt á eldhúsborðinu. Ég skildi
ekkert í þessu því ég hafði verið á fullu allan daginn í ýmsum snúningum.
Ég hef nú uppgötvað að þetta er alvarlegt vandamál sem ég ætla að leita mér
hjálpar við. Þessi sjúkdómur kallast á fagmáli AAADD eða "Age Activated
Attention Deficit Disorder", á íslensku Aldurstengdur athyglisbrestur".
Engin ummæli:
Skrifa ummæli